Persónuverndarstefna
Hvaða upplýsingum er safnað
Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn berast okkur þær upplýsingar sem þú skráir: nafn, nafn fyrirtækis, netfang, símanúmer, val á þjónustu og skilaboð. Vefurinn notar ekki vefkökur til að rekja notendur og safnar ekki upplýsingum í markaðsskyni.
Tilgangur vinnslunnar
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurninni og eiga í samskiptum við þig vegna hennar. Þær eru ekki seldar eða afhentar þriðja aðila í öðrum tilgangi.
Varðveisla
Fyrirspurnir berast í tölvupósti og eru ekki vistaðar í gagnagrunni á vefnum. Þær eru varðveittar svo lengi sem þörf er á vegna samskiptanna og síðan eytt, nema stofnað sé til viðskipta.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þær persónuupplýsingar sem við vinnum um þig, fá þær leiðréttar og óska eftir að þeim verði eytt. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar ef þú telur að vinnslan samrýmist ekki lögum.
Fyrirspurnir
Ef þú hefur spurningar um meðferð persónuupplýsinga getur þú haft samband við okkur í gegnum samskiptasíðu vefsins.