Ársuppgjör og ársreikningar
Ársuppgjörið dregur saman árið í rekstrinum. Við förum yfir bókhaldið, stemmum af og undirbúum uppgjörið svo ársreikningur og skattframtal byggi á traustum grunni.
Umfangið fer eftir þörfum hvers fyrirtækis og er ákveðið í samtali.
Hvað felst í þjónustunni
Yfirferð bókhalds
Heildaryfirferð á bókhaldi ársins þar sem leitað er að villum og ósamræmi.
Afstemmingar
Bankar, viðskiptamenn, birgjar og efnahagsliðir stemmdir af við árslok.
Undirbúningur ársuppgjörs
Uppgjörsfærslur, mat á eignum og skuldum og frágangur bókhalds.
Ársreikningar og skattframtöl
Gerð ársreiknings og skattframtals eftir því umfangi þjónustu sem samið er um.
Fyrir hverja hentar þjónustan?
- Fyrirtæki sem færa bókhaldið sjálf en vilja aðstoð við uppgjör
- Fyrirtæki sem Sedda sér um bókhald fyrir
- Sjálfstætt starfandi einstaklingar
- Fyrirtæki sem eru að ljúka sínu fyrsta rekstrarári
Ávinningur fyrir reksturinn
- Uppgjör á traustum grunni
- Afstemmt bókhald gefur rétta mynd af árinu.
- Minna álag við árslok
- Skipulögð vinnubrögð koma í veg fyrir kapphlaup við skiladaga.
- Betri byrjun á nýju ári
- Niðurstöður uppgjörsins nýtast við að skipuleggja næsta ár.
Spurningar um ársuppgjör
Hvenær er best að hefja undirbúning ársuppgjörs?
Því fyrr, því betra. Gott er að bókhald ársins sé fært og afstemmt áður en árið er gert upp.
Getið þið gert uppgjör ef aðrir hafa fært bókhaldið?
Í mörgum tilvikum já. Við förum fyrst yfir bókhaldið og metum hvað þarf til að ljúka uppgjörinu.
Hvaða gögn þarf ég að leggja fram?
Meðal annars bankayfirlit, upplýsingar um eignir og skuldir, birgðastöðu ef við á og önnur gögn sem tengjast rekstri ársins.
Ræðum þinn rekstur.
Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.
Hefjum samstarf