Fjármálastýring og stuðningur við stjórnendur
Fjármálastýring snýst um að hafa stöðuga yfirsýn og bregðast við í tíma. Við förum reglulega yfir fjármálin með stjórnendum, fylgjum eftir áætlunum og veitum stuðning í daglegum rekstri.
Þetta hentar sérstaklega fyrirtækjum sem hafa ekki eigin fjármálastjóra.
Hvað felst í þjónustunni
Regluleg yfirferð fjármála
Fundir með stjórnendum þar sem staðan er yfirfarin og næstu skref rædd.
Fjárhagslegt skipulag
Skipulag greiðsluflæðis, skuldbindinga og fjárhagslegra markmiða.
Rekstraryfirlit
Skýr yfirlit yfir afkomu og lykiltölur sem auðvelt er að lesa.
Eftirfylgni með fjárhagsáætlunum
Raunstaða borin saman við áætlun og frávik útskýrð.
Stuðningur við stjórnendur
Fjárhagslegt aðhald og ráðgjöf þegar á þarf að halda.
Fyrir hverja hentar þjónustan?
- Fyrirtæki sem hafa ekki eigin fjármálastjóra
- Stjórnendur sem vilja reglulegt aðhald í fjármálum
- Fyrirtæki í vexti
- Rekstur sem gengur í gegnum breytingar
Ávinningur fyrir reksturinn
- Stöðug yfirsýn
- Þú veist hvar reksturinn stendur, ekki aðeins við árslok.
- Frávik greind snemma
- Hægt er að bregðast við áður en lítið vandamál verður stórt.
- Traustari ákvarðanir
- Stjórnendur hafa fjárhagslegan grunn til að byggja á.
Spurningar um fjármálastýring
Hver er munurinn á fjármálastýringu og fjármálaráðgjöf?
Fjármálaráðgjöf er oft afmörkuð greining eða verkefni. Fjármálastýring er samfellt samstarf þar sem við fylgjumst með stöðunni og fylgjum eftir áætlunum yfir lengri tíma.
Hversu oft eru fundir?
Tíðnin fer eftir þörfum fyrirtækisins og er ákveðin í sameiningu.
Hentar þetta litlum fyrirtækjum?
Já. Fjármálastýring er ekki aðeins fyrir stór fyrirtæki og umfangið er lagað að rekstrinum.
Ræðum þinn rekstur.
Hvort sem þig vantar aðstoð við daglegt bókhald eða víðtækari fjármálaþjónustu viljum við heyra frá þér.
Hefjum samstarf